Fara beint í efni

Um fyrirtækið

Eitt elsta verktakafyrirtæki í landinu

Loftorka Reykjavík hefur starfað samfellt frá 1962. Félagið sérhæfir sig í jarðvinnuverkefnum, gatnagerð og malbikun.

Eldri vinnuvélar og vörubílar Loftorku á athafnasvæði.

Loftorka var í upphafi vélaleiga með loftpressur, en fljótlega tóku við stærri verkefni eins og lagning hitaveitu í ný hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Síðan hafa fá hverfi verið byggð upp á höfuðborgarsvæðinu án þess að Loftorka Reykjavík hafi tekið þátt í því með einhverjum hætti.

Félagið hefur í samstarfi við önnur fyrirtæki komið að uppbyggingu hafna og virkjana, og vegagerðarverkefni hafa verið unnin víða um land.

Sagan í ártölum

  1. 1962

    Loftorka stofnuð

    Loftorka var stofnuð sem sameignarfélag af hjónunum Sigurði Sigurðssyni og Sæunni Andrésdóttur ásamt hjónunum Konráð Andréssyni og Margréti Björnsdóttur. Sæunn og Konráð voru systkini. Í upphafi var félagið vélaleiga með loftpressur, en fljótlega tóku við stærri verkefni, meðal annars lagning hitaveitu í ný hverfi á höfuðborgarsvæðinu.

  2. 1973

    Hlaðprýði hf. keypt

    Loftorka keypti malbikunarfyrirtækið Hlaðprýði hf. Malbikun hefur verið stór og vaxandi þáttur í rekstrinum allar götur síðan.

  3. Upp úr 1980

    Starfsemi hefst í Borgarnesi

    Starfsemi hófst í Borgarnesi. Sigurður Sigurðsson sá um daglega stjórn í Reykjavík og Konráð Andrésson, búsettur í Borgarnesi, sá um starfsemina þar.

  4. Upp úr 2000

    Félaginu skipt í tvennt

    Félaginu var skipt í tvö sjálfstæð félög, í Reykjavík og Borgarnesi. Staðarnöfnin bættust við Loftorku-nafnið til aðgreiningar. Félögin eru aðgreind, bæði hvað varðar eignarhald og rekstur.

  5. 2017

    Ný kynslóð tekur við

    Í ársbyrjun 2017 keyptu bræðurnir Ari Sigurðsson og Andrés Sigurðsson, ásamt eiginkonum sínum Önnu Ólafsdóttur Björnsson og Hjördísi Jónu Gísladóttur, Loftorku Reykjavík ehf. Ákveðið var að reka félagið í óbreyttri mynd og hefur það verið gert.

  6. 2022

    60 ára afmæli

    Félagið hélt upp á 60 ára afmæli sitt með starfsfólki og gestum að Miðhrauni 10.

  7. 2026

    Forvarnaverðlaun VÍS

    Loftorka Reykjavík hlaut Forvarnaverðlaun VÍS í mars 2026. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr í markvissu forvarnastarfi.

Stjórnendur

Ari og Andrés hafa unnið nær allan sinn starfsaldur hjá Loftorku og gegnt þar ýmsum hlutverkum.

Ari Sigurðsson
Forstjóri og stjórnarformaður
Andrés Sigurðsson
Framkvæmdastjóri

Úr sögunni

  • Eldri rauður vörubíll félagsins sturtar möl á vinnusvæði.
  • Tveir menn við vinnuborð innan um verkfæri á gömlu verkstæði félagsins.
  • Fjölmennt samkvæmi í skemmu félagsins á 60 ára afmælinu 2022, litríkar regnhlífar hanga í loftinu.

Hafðu samband

Við tökum vel á móti fyrirspurnum um verk, samstarf og útboð.